UnnurLilja

Friday, November 21, 2008

titill

ég tek þig á orðinu hugga mín!

ég hef bara ekki frá neinu að segja nema skólanum mínum þannig að ég verð bara að gera það:)

allur minn tími snýst núna um kúrs sem ég held að heiti aðferðafræði á íslensku. Þar erum við að læra um tilvísanir í líkamann í tísku og erum búin að vera að gera möppu með hugmyndum og prufum sem verður síðar að einhverri flík með tilvísun í áður ákveðið líffærakerfi. Ég er með taugakerfið og ætla að prjóna eitthvað fallegt á þremur vikum. svolítið erfitt þar sem þetta má ekki vera "bara peysa"..þarf að vera eitthvað mjög artí og ekki notadrjúgt. sem er alveg frábært á þessum síðustu og verstu tímum þar sem maður hugsar mjög um notadrýgni. (ég veit að þetta orð er vitlaust ösp) Samt mjög gaman að vinna svona og læra að gera grein fyrir hverju einasta skrefi sem maður tekur í prósessinum að flíkinni. Sérstaklega fyrir mig þar sem ég hef aldrei teiknað neitt sem ég geri...frekar gerði ég flíkina þrisvar sinnum. Kennarinn er líka svolítið skerí...leið til að mynda yfir eina stelpu í dag í tímanum þegar hann var að gagnrýna möppuna hennar.

svo reyndar hugsa ég líka mjög mikið um teikninguna. Það er klárlega erfiðasti tíminn minn, ég teikna eins og fimm ára krakki og er skíthrædd við kennarann. Maður teiknar allavega ekki betur þegar maður er stressaður. Sá samt mannlega hlið á henni í síðasta tíma þannig að ég er að taka hana í sátt. Er einmitt að fara á eftir að teikna sjálfsmynd sem verður einstaklega áhugavert held ég.
ógeðslega pirrandi að vera í tíma sem maður veit að maður er ekki góður í og getur lítið gert í því nema æfa þig í öllum þínum frítíma sem er eitthvað sem ég nenni engan veginn þó ég reyni alveg. ég sakna alltaf eðlisfræði og stærðfræði þegar ég er að fara í teikningu.
er að búa mig undir fall í þessu. þá er ég pottþétt á að fara ekki að grenja þegar þar að kemur.

Svo er bara allt hitt gaman, spænskan batnar með hverjum deginum og allt æðislegt.

Erum svo í kvöld að fara á djamm hjá skólanum, ætlum nú samt að halda okkur á mottunni í þetta skiptið og reyna að hafa hemil á drykkjunni. Kunnum ekki við að fara að grenja í kennurunum okkar.

Ég ætla líka að naglalakka mig edrú ösp.

Vona að þetta dugi kæra fólk, kisskiss

8 Comments:

  • At November 21, 2008 at 8:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Er viss um að þú rúllir þessu öllu saman upp;)
    Hlökkum til að fá þig um jólin!
    KNÚS Eygló og strákarnir

     
  • At November 21, 2008 at 5:21 PM, Blogger Unknown said…

    Ég hef nú alveg ótrúlega trú á þér Unnur mín þó þú segir annað.. ég held að spurningin sé nú ekki endilega að vera góð, heldur hvað þú ert að teikna, er það ekki?? Hlakka til að sjá þig eftir áramót og gangi þér vel!!! ;* ;* ;*

     
  • At November 23, 2008 at 10:20 AM, Anonymous Anonymous said…

    Sjitt ég veit ekkert hvernig á að beygja þetta orð;) hef bara aldrei séð þetta orð notað sem nafnorð held ég, notaðu bara notagildi næst;) haha... kann bara ensku núna sko þannig að engar áhyggjur unnur mín:)
    En ég held þú náir teikningunni með glans, höndin sem þú sýndir mér um daginn var voða fín allavega:) líst vel á edrú naglalökkun, skalt endilega halda þig við það í framtíðinni;)
    kossogknús

     
  • At November 23, 2008 at 1:44 PM, Anonymous Anonymous said…

    sæl elskan, ég er ánægð með þetta, gott framtak;) vona að það líði ekki yfir þig þegar þú færð STAÐIST í teikningu:D jú ken dú it;) lovjúlongtæm, knus og kram Hugga

     
  • At November 23, 2008 at 3:46 PM, Anonymous Anonymous said…

    vóóóó nýtt blogg! þessu átti ég sko ekki von á.. ertu að reyna að stela af mér titlinum ofurbloggari ársins eða hvað??? :)

    Þú rúllar þessu upp elskan mín góða, þú ert svo klár ég hef engar áhyggjur af þér! og svo fögnum við árangrinum saman í jólafríinu veiii...

    Knús í krús

    Hansa

     
  • At December 5, 2008 at 4:57 AM, Anonymous Anonymous said…

    Þú átt klárlega met í því að láta sem lengst líða á milli blogga;) og Ösp og Anna fylgja fastar á eftir í þeim málunum;)
    Skora á þig aftur kona góð:)
    Hugg

     
  • At December 8, 2008 at 3:13 PM, Blogger Unknown said…

    Vó blogg?!? ;)
    Ég hef óbilandi trú á teiknihæfileikum þínum, þeir eru þarna inní þér. Ef þið kennarinn eruð ekki sammála um það sem þið sjáið á blaðinu þýðir það ekki að hann hafi þá rétt fyrir sér, á fagmáli heitir þetta "listrænn ágreiningur". Þú ert að stunda list, list er túlkun, og þetta er þín túlkun á því sem sett var fyrir:D

    Hvenær er lending á klakanum?

     
  • At January 23, 2009 at 3:14 PM, Anonymous Anonymous said…

    hey!! þú ert ekki að standa þig í blogginu:) þurfum nú að svo að fara skypast.
    koma svo bloggaðu kona...

     

Post a Comment

<< Home