holaaaa
hæhæhæ
það er ennþá jafnt gaman í skólanum hjá mér...fullt að gera en allt skemmtilegt samt. Er í kúrsum sem mig hefur alltaf langað til að læra, sníðagerð, litafræði, listasaga og síðast en ekki síðst, teikningu. Hún gengur nú svona upp og ofan, en arna er búin að lofa mér að ég verði klár einhverntímann:) þetta er víst bara æfing...
Ösp kom til mín á fimmtudagskvöldið og það var yndislegt að hitta hana loksins:) Ekkert eðlilegt hvað manni finnst tíminn fljótur að líða, svo stutt síðan hún pantaði flugið finnst mér. enda er farið að styttast mjöög í jólin, rétt rúmur mánuður þar til ég kemst heim í sveitina mína og fæ flatkökur með hangikjöti.
Föstudagurinn fór mest bara í hangs, kíktum aðeins í búðir en sökum mikillar skynsemi keyptum við okkur bara einar buxur hvor. hvað er að gerast? Svo fórum við að versla í matinn og svo töfraði aspasinn upp þessa dýrindismáltíð sem við skoluðum niður með romm í sprite. Sem við hefðum kannski ekki átt að gera þar sem við gleymdum okkur aðeins í gleðinni. Aðeins.
Sváfum svolítið lengur en ætlunin var en héngum svo meira í garðinum og á röltinu í uppáhaldshverfinu mínu hérna, spjölluðum um daginn og veginn og slöfruðum í okkur sveittri pizzu. Svo fór þessi elska í nótt eftir að hafa aðeins ruglast á lyftuhurðinni, í staðinn fyrir að ýta á lyftutakkann dinglaði hún bjöllunni hjá nágrönnum mínum:)
Svo er bara fulltfullt að gera í skólanum, endalaus verkefni þó að flest þeirra séu samt skemmtileg. Bekkurinn okkar örnu er mjög fínn, krakkarnir eru voða góð við okkur og alltaf til í að þýða fyrir okkur þegar við skiljum ekki. Ein brasilísk stelpa er reyndar ekki sú bjartasta og skemmtilegasta, eigum að gera fyrirlestur með henni á morgun...það er fyrsta og síðasta verkefnið sem við vinnum með henni. gaman að því:)
veit ekki meir...leiter,
Unnur Lilja

5 Comments:
At November 10, 2008 at 2:04 AM,
Anonymous said…
gaman að allt gengur vel:) hlakka til að sjá þig eftir mánuð! knúsknús;*
At November 12, 2008 at 3:38 AM,
Anonymous said…
Þetta er nú meira sældarlífið hjá þér Unnur, spurning hvort það sé betra að vera á spáni eða vera á valtara ;)
At November 13, 2008 at 3:12 AM,
Anonymous said…
HAHAH og svo forðuðum við okkur niður stigann þegar ég var búin að asnast til að hringja bjöllunni...ekki aaalveg vöknuð greinilega;) Mig langar að koma til þín aftur!
At November 18, 2008 at 2:33 PM,
Anonymous said…
Loksins blogg! þú ert ekki að stnada þig ;o ! hlakka til að fá þig heim :D ! er meira að segja búin að ákveða jólagjöf handa þér :D ! haha :*
At November 21, 2008 at 5:35 AM,
Anonymous said…
þú ert heimsins lélagasti bloggari, til hamingju með það! :) vertu nú villt og komdu með smá fréttainnskot! knús á þig annars, er orðin ívið spennt að hitta þig:D
Post a Comment
<< Home