Unnur sýður fisk
Á meðan á þessu stóð voru hrísgrjónin að malla. Þar sem engar leiðbeiningar voru aftan á pokanum þurfti hún líka smá ráðleggingar frá Örnu en án allrar hjálpar skramblaði hún eggin og skar salatið.

Þar sem hún var með þrjá potta á pönnunni gafst því miður ekki tími til myndatakna á meðan eldamennskunni stóð.
Eftir alltof langa eldamennsku gat hún loksins sest niður og notið þessa ljúffengu máltíðar sem komst þó ekki með tærnar þar sem mamma hennar hefur hælana.

12 Comments:
At October 1, 2008 at 7:13 AM,
Anonymous said…
Jæja elskan það var nú gott að þú gast soðið fiskinn. Það er nú ekki rétt að ég eldi svo góðan fisk - hef svo sem aldrei verið mikil fiskmanneskja. En þú verður örugglega orðin mjög flink í eldhúsinu eftir næstu þrjú árin.
Ástarkveðjur að heiman
mamma
At October 1, 2008 at 7:38 AM,
Anonymous said…
Hvað er málið með hrísgrjóna/eggjahræru-gaurinn???
En ég var tótallí að læra þetta í vikunni líka.. Sauð mér ýsu, en ég hafði þetta bara íslenskt og einfalt, með kartöflum og smjöri!
At October 1, 2008 at 10:08 AM,
Unknown said…
Hahaha til hamingju Unnur með fiskinn, hvað er samt með þessi egg? Spurning hvort þú sért á réttri hillu í lífinu, diskaskreytingin fær 11+ frá mér!
At October 1, 2008 at 11:12 AM,
Anonymous said…
Ég er sammála Öldu, þetta lítur vel út allavega svona á mynd ;)
At October 1, 2008 at 1:59 PM,
Anonymous said…
Dugleg ertu kæra systir. Ekki taka samt of miklum breytingum þarna úti, mig langar að þekkja þig um jólin. Byrjuð að búa um rúmið þitt, raða í fataskápinn og nú töfra fram heila máltíð sem inniheldur meira en egg, skinku og grænmeti!
Knúúús
At October 1, 2008 at 6:20 PM,
Anonymous said…
haha ég vissi að þú hefðir þetta í þér:) hlakka til að prófa hæfileikana þegar ég kem í heimsókn;)
At October 3, 2008 at 4:04 AM,
unnurlilja said…
sko alda, töfraskerinn úr sjónó varð eftir heim þannig að ég þurfti að skera þetta með ikearusli.
egg og grjón eru viðbjóðslega gott hekla, ekkert bögg.
og ólöf hélt þú þekktir mig betur en þetta, að búa um rúm er tilgangslaus tímaeyðsla og þar sem ég er einstaklega upptekin þessa dagana er ég ekki að fara að gera það vinan.
At October 4, 2008 at 1:39 PM,
Anonymous said…
Juuu hvað ég er stolt af þér esskan:)
At October 7, 2008 at 2:31 PM,
Anonymous said…
Greinilega búin að þróast svolítið eldamennskan hjá þér síðan í fyrra?!?!?! Ég held það toppi samt ekkert eggjahræruna þína =) Ég er mjöög stolt af þér!
TQM
At October 11, 2008 at 8:19 AM,
Anonymous said…
jæja er ekki kominn tími á nýtt blogg? :)
At October 19, 2008 at 1:49 PM,
Anonymous said…
Jæja Unnur...
At October 25, 2008 at 12:42 PM,
Anonymous said…
Koma svo:)
Post a Comment
<< Home