hæ
afsakið þessa lööngu pásu mínir tryggu lesendur. ég skal standa mig betur í framtíðinni.
við arna kláruðum skólann á föstudaginn síðasta okkur til mikillar gleði. Eftir langt og strangt kveðjudjamm fluttum við svo í íbúðina okkar á laugardaginn. Byrjuðum á að þrífa allt hátt og lágt þar sem við nenntum því ómögulega áður (sökum mikilla anna).
Svo gerðist hið ómögulega sem móðir mín hefði aldrei trúað upp á mig en ég raðaði öllum fötunum mínum í fataskápinn minn.
Hversu lengi þau staldra þar við skal ég samt ekki segja til um.

Svo tók húsmóðirin í mér völdin áðan og ég skúraði gólfið. Ég lét nú ekki þar við sitja heldur ákvað að strauja nokkur föt líka. Eftir að hafa straujað allt án árangurs og tvisvar sinnum fundið straujárnið með strauið ofan á straubrettinu ákvað ég að sætta mig við krumpuðu skyrturnar áfram.
Maður getur ekki verið góður í öllu.
Maður getur ekki verið góður í öllu.

Skólinn okkar nýi er ógómógó flottur. Fórum og skoðuðum hann allan á mánudaginn og getum eiginlega ekki beðið eftir því að byrja í alvöruskóla. Spænskutímarnir eru líka fínir, erum bara fjórar í tíma og voða næsó.
knús frá mér sitjandi á svölunum með sangriu í hönd....samt alveg með nettan kuldahroll:)
knús frá mér sitjandi á svölunum með sangriu í hönd....samt alveg með nettan kuldahroll:)

9 Comments:
At September 24, 2008 at 9:22 AM,
Anonymous said…
Þessi gamli er alveg met! Það er alltílagi að kunna ekki að strauja, ég kann það ekki heldur:)
hlakkaklakkahlakka til að koma í heimsókn í íbúðina!!!:D
At September 24, 2008 at 9:23 AM,
Anonymous said…
Takk fyrir bloggið Unnur mín. Batnandi mönnum er best að lifa.
Kveðja úr úrhellinu á Íslandi
mamma
At September 25, 2008 at 4:29 AM,
Anonymous said…
Jeiii nytt blogg sjubbirei!
Gamli er bara kjút!
Stolt af ter ad hafa radad og tekid til vá...
ég er varla búin ad koma mér fyrir í herberginu mínu enntá og ég flutti inn fyrir mánudi:)
At September 25, 2008 at 4:37 AM,
Anonymous said…
Vei vei loksins nýtt blogg:) hafðu það ógó gott elskan! kv.Hugrún
At September 25, 2008 at 4:39 AM,
Anonymous said…
Hæ skvís! Alltaf gaman að lesa bloggin þín :)
Ég er líka mjög léleg í að strauja hehe...
Saknisakn og skemmtu þér!
At September 25, 2008 at 10:26 AM,
Anonymous said…
gaman að heyra frá þér sæta...
KNÚS frá okkur öllum;)
At September 26, 2008 at 4:41 AM,
Anonymous said…
Alltaf jafn ánægjulegt að lesa sögur af þér, þú ert nú meiri glaumgosinn alltaf hreint! og meiriháttar dugleg að kunna að strauja!! Það er einmitt eitt af því sem ég ætla ekki að læra að gera í framtíðinni!
Puss og KRam (sænska sko)
At September 26, 2008 at 4:46 PM,
Anonymous said…
vá en æðislegt hjá þér..
me encantaria estar en espana o en un pais que no es islandia ahora.. hay muchissima lluvia aqui :(
buhhuuuuu...
diviertete al maximooooo!!!
ciaoo
Kv. Hrönn Þorkelsd.
At September 29, 2008 at 1:47 AM,
Dísin said…
Gaman að ,,heyra" frá þér!
kNús!
Post a Comment
<< Home