Allt fyrir Öspu
Versta er að ég hef ekki frá miklu að segja vinan!
Á sunnudaginn ákváðum við að vera ruddalegir túristar og vöknuðum upp fyrir allar aldir og fórum á stærsta flóamarkað í Evrópu samkvæmt Lonely Planet allavega. Urðum samt fyrir pínu vonbrigðum en það var bara betra því þá keyptum við ekki neitt:)
Síðan fórum við á sýningu sem heitir Bodies. Þessi sýning samanstendur af uppstoppuðum, fláðum Kínverjum í alls kyns stellingum. mjög magnað alltsaman, get samt ekki sagt að eg sé mjög lystug á kjöt ennþá. Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig á útskýra þetta, gúgglið þetta bara.
Síðan erum við bara búnar að vera gera mest lítið sko, skóli fyrir hádegi og svo sólbað í garðinum eftir hádegi.
Erum svo búnar að fá lykla af íbúðinni þannig að nú förum við að þrífa og fara í verslunarferð í Ikea. Gamangaman.
jæja, veit ekki meir. Vona að þetta mæti kröfum þínum Aspa mín:)

Knúsímús, Unnur Lilja

4 Comments:
At September 3, 2008 at 4:06 PM,
Anonymous said…
Jújú Unnur mín þetta var svosem skítsæmilegt;) djók þú ert æði!
Og takk fyrir að birta þessa legendary mynd af mér á blogginu þínu! ég er svo falleg á henni klædd í bónuspokann með skelfingarsvip meðan Skarpa framkvæmir gjörning á hárinu á mér!:D mí læk a menímenímení
At September 5, 2008 at 1:26 AM,
Anonymous said…
Ahahahahaha ég ELSKA þessa mynd!!! Klassík!
En ojjj já þetta bodies dæmi er líka hérna í köben, er að manna mig upp í að fara á þetta... veit ekki hvort mig langi það samt!!
Knús í bala
At September 11, 2008 at 1:27 AM,
Anonymous said…
Jæja eg er buin ad blogga nuna og setja inn myndir geri adrir betur
nu er komid ad ter!!
tutiluu
At September 11, 2008 at 4:54 AM,
Anonymous said…
Sko ég var búin að snargleyma að þú værir komin með blogg (ef ég vissi þá e-n tímann af því) svo hér kemur fyrsta kommentið frá Bjöllanum.
Heví sátt með ykkur að vera svona duglegar að blogga í útlöndum það hjálpar okkur frónbúum að lifa rigningardagana af:)
Hafðu það gott, sjáumst kannski í Madrid e-n daginn (kannski samt á Íslandi fyrst!) ciao
Post a Comment
<< Home