hæhæhæhæhæ
Það er loksins komið að því!
Síðasti mánuður hefur farið í mikið hangs; ótæpilega mikið horft á sex and the city, farið í mörghundruð labbitúra um hverfið og hangið á feisbúkk sem er ástæða þess að ég hripaði ekkert niður hér, ég hafði ekki frá neinu að segja.
en nú er komin betri tíð með blóm í haga.
Við byrjuðum í skólanum á fimmtudaginn síðasta og líst bara voða vel á alltsaman. Fyrst var kynning á öllu á miðvikudagskvöldið og svo boðið uppá ýmsar veigar sem var skemmtó.
Fórum svo í fyrsta tímann sem var formfræði, tveir tímar í það að teikna kassar og hringi sem hljómar ekki spennandi en er alveg mjög skemmtilegt. Erum bara búnar að sitja og teikna hringi síðustu daga. Síðan fórum við í einskonar handavinnu þar sem kennt var að hekla. Við arna náttúrulega slógum í gegn, einu sem kunnu þetta áður og ég held að þetta verði uppáhaldstíminn minn.
Síðan á föstudaginn fórum við í sníðagerðartíma sem ég hlakka mjög til að læra, kennarinn voða ljúf kona sem minnir mig á helgu, saumakennarann á laugó.
Svo fórum við í tima sem ég veit ekki alveg hvað heitir á íslensku en þar verðum við að vinna með líkamann, tilvísanir í listum í líkamann og svo framvegis. Fengum þar risaverkefni fyrir föstudag sem vex mér svolítið í augum. En það reddast.
Ótrúlega erfitt að vera í tímum á spænsku, bæði að þurfa að skilja efnið og svo líka tungumálið. En þetta verður fljótt að koma, hinir í bekknum eru allir voða næs og boðnir og búnir að hjálpa okkur þegar við erum heimskar.
ég er því bara yfir mig hamingjusöm þessa dagana, svo gaman að hafa nóg að gera. Það verða komin jól áður en ég veit af. Svo kemur öspin mín í heimsókn 6 nóv og verður yfir helgina. hlakka endalaust mikið til þess að hitta hana.
Vona að allir hafi það gott í frostinu, það er farið að kólna allsvaðalega hérna. Hitinn verður settur á 1 nóv í húsinu okkar þannig að þá getum við sleppt kuldagöllunum á nóttunni.
1000 kossar til allra sem hafa enn trú á mér sem bloggara,
Unnur Lilja

7 Comments:
At October 26, 2008 at 3:34 AM,
Anonymous said…
Sæl elskan.
Ósköp gaman að lesa bloggið þitt eins og alltaf. Gaman að fylgjast með hvað skólinn gengur út á. Þau fóru öll í kindasmölun, pabbi þinn, Valdís, Bragi og Bjarni Dagur. Sá síðastnefndi svaf mjög vel í nótt og er alveg held ég að taka afa og ömmu í sátt. Það biðja allir að heilsa þér.
Ástarkveðjur úr frostinu í sveitinni. Mamma
At October 26, 2008 at 8:53 AM,
Anonymous said…
Ég hef enn trú á þér sem bloggara og tek glöð við þúsund kossum ;)
Skemmtu þér skvís, gott að allt sé í góðu standi hjá þér!
At October 26, 2008 at 1:01 PM,
Anonymous said…
Jeeeeiiiii loksins... mig langar líka í heimsókn til þín eins og Ösp!!
At October 26, 2008 at 3:33 PM,
unnurlilja said…
komduþá kona!! við getum allar spúnað í rúminu mínu!
At October 27, 2008 at 1:55 AM,
Dísin said…
Vei loksins fréttir! Gaman að heyra aðeins frá þér og það þýðir ekkert að missa trúnna á bloggaranum í þér þótt komi smá lægð :)
At October 27, 2008 at 3:42 AM,
Anonymous said…
Veiveivei:) ég missi ekki trúna á þér ef þú missir ekki trúna á mér sem bloggara;) ég hlakkahlakkahlakka til að koma....Anna vertu villt og koddu líka! þríspún hljómar vel;) ahaha
At October 31, 2008 at 3:21 PM,
Anonymous said…
Sendir KNÚS á frænku sína:-)
Post a Comment
<< Home